18. september 2017

Frumsamin lög eftir Melanie. Hún lék á harmoniku og söng.
Ég spilaði með Melanie og improviseraði við texta og hljómsetningar hennar í myrkvaðri kirkjunni. Sérstök stemming og skemmtilegir tónleikar.

Seyðisfjarðarkirkja 16. mars 2014. Veðrið er fallegt eins og sést og autt niður í bæ en mikill snjór í fjöllum og Fjarðarheiði var ófær. Ég spilaði í messunni og Óli einn af nemendum Lunga skólans og söngnemandi hjá Hlín Pétursdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík kom og söng einsöng í forspilinu og með kórnum í athöfninni. Messa með altarisgöngu og kirkjukaffi á eftir, flott messa.